Við hlökkum til að opna aftur í byrjun apríl 2025
Fálkaklettur
Klettastígur í Esjunni
Ógleymanleg upplifun
Bókaðu ævintýraferð upp klettastíginn Fálkaklett í Esju. Á leiðinni er einstakt útsýni yfir sundin blá og til höfuðborgarinnar. Stærsta upplifunin er að sigra sjálfan sig og klára brautina upp á topp Fálkakletts og niður aftur. Innifalið er búnaður, kennsla og leiðsögn. Ferðin byrjar á bílastæðinu við Esjurætur og tekur alls um 3 tíma.
Hvað er Via ferrata?
Upplýsingar
Tími
3 tímar
Hæðarhækkun
250 metrar
Þyngdartakmörk
40 - 120 kg
Aldurstakmark
14 ár. 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Líkamleg geta
Þú þarft að geta gengið upp bratta brekku og hafa góðan handstyrk
Reynsla
Ekki er gerð krafa um reynslu af klifri
Algengar spurningar
Hvað er innifalið?
Aðgangur, leiðsögn og leiga á öryggisbúnaði
Hvað á ég að koma með?
- Orkustykki
- Vatnsbrúsí
- Skel-jakki
- Síðar buxur
- Buff
- Hlýr fatnaður eftir veðri
- Hanskar með leðri eða gúmmí gripi. Einnig er hægt að fá slíka hanska lánaða hjá okkur
- Gönguskór. Við mælum með uppháum gönguskóm með grófum sóla en einnig má vera í utanvega hlaupaskóm
- Við mælum ekki með að taka bakpoka í klifrið en hægt er að skilja tösku eftir fyrir neðan leiðina
Opnunartími
Upphafsstaður
Bílastæðið við Esjurætur.
Þegar komið er frá Þjóðvegi 1 er beygt til vinstri og ekið um 200 metra í vestur og lagt þar á malbikuðu bílastæði þar sem við hittum ykkur.
Hér er staðsetningin í Google Maps:
https://maps.app.goo.gl/PNBf4p9ZNELEQyaW7
Er snyrting á svæðinu?
Get ég farið á eigin vegum?
Hægt er að fara klettastíginn í Fálkakletti á eigin vegum. Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði:
- Bóka tíma með því að senda tölvupóst á info@falkaklettur.is og greiða kr. 4.500 á mann
- Hafa viðeigandi reynslu af klifri
- Hafa viðurkenndan öryggisbúnað, þ.m.t. hjálm, klifurbelti og Via ferrata búnað með höggvörn í samræmi við staðal EN 958
Bókun er bundin við ákveðinn tíma sem skarast ekki á við okkar hópa.
Öll sala og leiðsögn þarf að fara í gegnum Fjallafélagið ehf.
Svæðið er vaktað með eftirlitsmyndavélum.
Afbókunarskilmálar
Afbókun með meira en 24 tíma fyrirvara: Full endurgreiðsla
Afbókun með minna en 24 tíma fyrirvara: Engin endurgreiðsla